Árið 2016 hjá Kviklandi leið hratt og margt gerðist.
Frá 1.mars -31.des starfaði Hlynur fyrir Skógræktarfélag Reykjavíkur og lenti þar í ýmsum ævintýrum. En fyrst tók hann vinnuvélaréttindi. Heiðmörk og Múlastaðir í Flókadal voru hans helsti vinnuvettvanur og Sævar hans helsti starfsbandamaður ásamt Gústafi og Helga Gísla. Þakka ykkur strákar fyrir góðar stundir. Auk þess komu margir kynlegir kvistir við sögu, íslenskir sem og erlendir. Hlynur velti Hilux í febrúar en slapp hann og hans farðþegi, Setafán, við meitiháttar skaða og Hilux varð úr sögunni. 1. mars var Landcruserinn keyptur þökk sé tryggingum. 5. okt leið yfir Hlyn í sundi í Brogranesi, en það lagaðist með tímanum. 21.okt skall tré á haus Hlyns með varanlegum hálsáverkum við vinnu sína við grisjun þegar tré féll á höfuð hans. Eymslin eru nú að lang-mestu farin en enn heyrir Hlynur brak í hálsi. Hrakkfallaárið hans Hlyns. Kolla tók meirapróf og fór að keyra rútur dag eftirdag sumar vikurnar. 2017 byrjar vel. Hlynur starfar nú sem skógræktarráðgjafi hjá nýrri stofnun, Skógræktin. Hans fasta bækistöð er á Hvanneyri. Kolla er komin með stöðu hjá IcelandAir í þjónustuveri. Starfsstöðin er við Loftleiði í Rvk. Varðandi Out and Play, þá bíður enn eitt video verkefni eftirvinnslu, en það stendur til að klára það, það var samt tekið upp í ágúst svo tíminn líður hratt. Vonandi ná þau hjúin að sópa saman eins og einu eða tveimur ævintýravideoum í sumar. Nú er bara að sjá hvað gerist næst. Góðar stundir.
0 Comments
Leave a Reply. |
KviklandFréttir af hinu og þessu þegar það á við. Geymsla
December 2022
Flokkar |