Við höfum verið að færa okkur frá hallandi landi yfir í bratt land og má segja að það sé orðið snarbratt í dag. Ég hefði tekið mynd en ég hélt ekki jafnvægi við það svo ég sleppti því. Annars, allt gengur vel og ég hugsa að við séum um það bil að klára einn hektara. Málum miðar það vel að við erum bara roggnir með okkur, enda bæði Orri og Benni þaulvanir grisjunarmenn og ég bráðefnilegur lærlingur.
MYNDIR Allar myndirnar eru teknar af sama svæðinu. 1) Á efstu myndinn eru Benni og Orri að biðja til Mekka líklega, nema það sé líkneskið þarna vinstra megin, sem var eitt sinn stormfallstré. (24.mars 2015) 2) Næsta mynd er verktakarnir þrír á 18 degi (Hlyns tímatal), Benni, Orri og Hlynur. (24.mars 2015) 3) Neðsta myndin er tekin á fysta degi og þar sem skógurinn er afskaplega þéttur. (sjá bleikmekta tréð á efstu og neþstu myndinni, sama tréð) (24.febrúar2015)
0 Comments
Leave a Reply. |
KviklandFréttir af hinu og þessu þegar það á við. Geymsla
December 2022
Flokkar |