Í dag var haldin ráðstefnan "Tækifæri söguferðaþjónustu" í Norræna húsinu í tilefni 10 ára afmælis Samtaka um söguferðaþjónustu. Ráðstefnan var þræl góð og höfðu báðir fulltrúar Kviklands, þau Kolla og Hlynur, bæði gagn og gaman af. Felix Bergsson stýrðu umræðu. Hér á eftir verið farið yfir nokkur atriði. Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra hóf mál. Ágrip - Vesturíslendingar sækja heim á slóðir forfeðra. - Söfn eru víða um lönd - Samtökin (söguferðaþjónusta) endurnýjaði samning við iðnaðarráðuneytið. - Sagan er svo verðmæt sem ferðamaðurinn skynjar. Rögnvaldur Guðmundsson, Formaður SSF Saga og framtíð samtaka um söguferðaþjónustu Fjallaði um sögu samtakanna. - Aðdragandi 1998-2006 - Sett á laggirnar 2006 á Hofi í Vatnsdal - sagatrial.is - "Follow the Vikings" var ráðstefna í Foteviken í SWE. - Vilja að söguferðaþjónusta fái aukið vægi - Miðla þekkingu, lifandi miðlun Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF Söguferðaþjónusta á mikið inni - Ferðamenn vilja koma vegna veðursins (vindsins jafnvel.) - Álagi dreift um landið og árið - Vetrargestir sækja frekar í söguferðir en sumargestir - Ferðamenn vilja fjárfesta í upplifun - Samtímasagan er einnig spennandi, tónlist ofl. Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu Söguferðaþjónusta og markaðssetning Íslands erlendis. - Tengja erlendar og innlendar greinar saman. - Menning - ævintýri - hreinleiki - sköpun - sjálfbærni - dulúð - visiticeland.is - inspiredbyiceland.is - "creating a sense of place and telling a story" Andri Snær Magnason, rithöfundur Hola íslenskra fræða er allt of lítil. - Iceland Airwaves 4-8 nóv 2016 - Icleand Airwords - Byggja má meira á Rímnaarfinum. - Edda er aðal - Orðstír skiptir máli. "Deyr fé, deyja frændur..." - Holan ( í titli fyrirlesturs) Stofnun Árna Magnússonar á íslenskum fræðum á AÐEINS 350 fm. - "Stækkum holu íslenskar sagnafræða". KAFFIHLÉ Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, Landnámssetrinu í Borgarnesi Hlutverk sögu og menningararfs í Iceland Academy Fjallaði um INSPIREDBYICELAND og sýndi 2 ný video. gott kort af sögu á landsvísu (sjá meðfylgjandi mynd hér neðar). Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur Notkun og misnotkun sögunnar Skemmtilegasti fyrirlesturinn. - Sigmundur Daffí Guðlaugsson er dæmi um misnotkun á sögðuhefðinni, með hótunum "ef þið gerið ekki eins og við þá eru þið..." - Sjálfsstæðisbarátta Jóns Sigurðssonar, hver skrifar? Vildi JS í alvöru gera allt sjáfstætt þarna á klakanum, vildi hann í alvöru yfirgefa þetta ljúfa land, Danmörk? Sumir líktu JS við Chekkevara og þannig hetjur. - Þorskastríðið, frá íslenskum bæjardyrum er augljóst hver er sigurvegari "stríðsins". - Guðríður gekk til Rómar... Hennar er minnst í Grænlendingabók og sögu Eiríks rauða, en var hún yfir höfðu til? gekk hún suður, hvert suður? Hlynur spyr sjálfan sig: skiptir tilvera Guðríðar máli, sagan er nú þegar orðin, hvort fótur sé fyrir henni eða ekki, sagan lifir (eins og Lagarfljótsormurinn sem auðvitað er ekki til í holdi og blóði, en vissulega í hjarta Héraðsmanna) Á ráðstefnunni hitti Hlynur þrjá sem hann þekkti: Erlu Dóru Vogler og mann hennar (Teigarhorni) og Ragnhildi Sigurðardóttur, sem sér um Snæfellsnesið eins og það leggur sig, en ekki hvað. Skúli Björns (hér á eftir) er líka astanmaður svo hann þekkir til hans líka. Í lokin tók Skúli Björn Gunnarsson, Skriðuklaustri, saman þrjár vísur. Árin tíu tifað hafa taktvist höfum færst úr stað ferðamenn í fortíð grafa Fáfnishjartað leita að Fram skal sækja feta veginn fræðin láta lönd og leið Hörfa jafnvel heim megin höndla með vorn gamla meið Menningunni öll við unnum ásókn gesta magnast enn söguna úr sagnabrunnum sötra þyrstir ferðamenn Felix Bergson las líka eina limru sem barst hafði með skeyti frá Vík í Mýrdal Í sögulegu ljósi má líta flesta daga lítilfjörleg án þeirra væri okkar saga orðstírinn er stór miklisvísir mjór og í Holu verður... (náði ekki restinni, en hún var hnittin) Góð samkoma
1 Comment
Frábært veiðivideo komið á hvítatjaldið. Sveinn El alheimsmeistari sá um og gerði þó Hlynur geti státað sig af einni og einni tökuglefsu í stórmyndinni. Myndin er gefin út í nafni óregluþáttanna "Bíttu á, helvítið þitt" undir merkjum Wollenkopf. Skemmtið ykkur vel og gleymið ekki poppinu... eða öllu heldur hömsunum. TAXI Aukin ökuréttindi tvist og bast.
Stórviðburður gerðirst innan raða Kviklands í dag. Framkvæmdastjór (eða stíra) Kviklands, Kolla, fékk í dag auki ökuréttindi. Nú má hún keyra leigubifreiðar. Til hamingju Kolbrún. Það má kannski við bæta að Hlynur (starfsmaður í þjálfun) náði í vinnuvélaréttindi í Mars. Til hamingju með það Hlynur. |
KviklandFréttir af hinu og þessu þegar það á við. Geymsla
December 2022
Flokkar |