Oddsstaðir 2 eru innarlega í Lundareykjadal. Þar er um 1/2 hektari af skógi sem var girtur af um 1930. Þá var sáð birki í hann. Um 1960 var gróðursett fura og greni aukalega í hann. Eitt inngrip (svo heitir getur) í skóginn var 2005 og háður þeir Siggi Freyr og Guðmundur Sig það stríð. Síðan hefur verið útbúið grillstæði og uppkvistað meira og minna allt. Um helgina (27.-28.apríl), fékk Guðmundur mig til að líta með sér í reitinn og sýsluðum við svolítið seinnipartinn af föstudeginum og fyrri partinn af laugardeginum. Einnig smíðuðum við nettan legubekk fyrir gesti og ekki síður þreytta verkmenn í grisjun. Neðan við hús snyrtum við léttlega eldgömul reynitré. Gríðarlega góð gestrisni og húsið alveg að verða full klárað. Guðmundur á hrós skilið fyrir allt sem hann er að gera á Oddssötöðum 2. Takk fyrir mig, Guðmundur.
0 Comments
Laugardaginn 14.apríl 2018 var haldið námskeið í ungskógaumhirðu á Hvanneyri af frumkvæði Félags skógarbænda á Vesturlandi. LBHI hélt utan um námskeiðið og var Hlynur Gauti Sigurðsson fyrirlesari með dyggri aðstoð Guðmundar Siguðrssonar, skógræktarráðgjafa á Vesturlandi. Frá árinu 2010-2017 höfðu þau Hlynur og Sherry Curl haldið samskonar námskeið á Fljótsdalshéraði, alls 7 skipti. Þetta áttunda skipti var því í fyrsta skipti sem það er haldin utan Austurlandsfjórðungs. Námskeiðið miðaði aðallega að umhirðu á lerki og furu.
Morguninn fór fram innandyra í formi fyrirlestra um millibilsjöfnun (bilun/snemmgrisjun) og trjásnyrtingu (tvítoppaklipping, snyrting og uppkvistun). Eftir hádegið var farið í Steindórsstaði í Reykholtsdal þar sem húsráðandinn, Guðfinna Guðnadóttir, tók á móti okkur. Á Steindórsstöðum mátti finna ýmsar skógargerðir og fengu þáttakendur að meta skóg og sjá hvernig millibilsjöfnun fer fram. Trjásnyrtingum voru einnig gerð skil og skeggrætt mikið um ýmsar úrfærslur. Um kaffileytið var brunað sem leið lág í Logaland og hittum þar á Hraundísi Guðmundsdóttur, skógræktarráðgjafa á Vesturlandi og heimamann, en hún hellti upp á ketilkaffi og furunálate. Tekinn var stuttur göngutúr um svæðið þar sem danskur skóg-listamaður, Johan Grønlund, hafði unnið við gerð skúlptúra víðs vegar um svæðið. Námskeiðið endaði á nágrannajörðunum í Deildartungu og Gróf en þar voru tveir ólíkir lerkireitir millibilsjafnaðir tveimur árum áður. Þátttakendur á námskeiðinu voru 9 Bergþóra Jónsdóttir, Hrútsstöðum í Laxárdal Guðmundur Sigurðsson, Oddsstöðum í Lundareykjadal Benedikt Eyjólfsson, Búðardal á Skarðsströnd Margrét Beta Gunnarsdóttir, Búðardal á Skarðsstönd Jón Zimsen, Innra Leiti Skógarströnd Knútur Dúi Kristján Zimsen Innra Leiti Skógarströnd Guðbrandur Brynjúlfsson, Brúarlandi Guðmundur Rúnar Vífilsson, Ferstiklu í Hvalfirði Margrét Stefánsdóttir, Ferstiklu í Hvalfirði https://www.skogarbondi.is/single-post/2018/04/20/Fallega-vaxa-ungsk%C3%B3gar |
KviklandFréttir af hinu og þessu þegar það á við. Geymsla
December 2022
Flokkar |