Á dögunum (30.sept 2015) var haldin flott ráðstefna, Umhverfisdagur atvinnulífsins á Hilton Hótel. Báðir "starfsmenn" Kviklands héldu þar innreið og fylgdust áhugsamir með öllu, eða því sem næst. Hér eru nokkrir punktar af ráðstefnunni.
Daði Már ORKAN / FERÐAÞJÓNUSTAN / FISKURINN - ´Abyrg aulindanýting, Hornsteinn skilvirkrar auðlindanýtingar. (Ólimpískar veiðar = opið öllum skipum, kapplhlaup) - Hagsmunir samfélagsins, sjálfbær rekstrarhvati. Kristín Vala Matt. HS-Orka - Auðlindagarðurinn (töff video og cool stuff) Guðni Th. Jóhannesson Skemmtileg saga um þorskastríðið og, jahh, hvað sagan endurtekur sig í sífellu. SVO VAR FUNDASPLÚNDRUN (sértæk málefni í nokkrum sölum) Sjávarútvegurin Svavar Svavarsson, HP Grandi - Fiskiflotinn hefur stórlega minnkað olíunotkun á fáum árum. (700-370 tonn = breyting á olíuæðinni) - Lagt uppúr sjálfbærri nýtingu hafsins - Lagt upp með mengunarvarnarbúnaði - Talað um sorpflokkunarstöð (25 flokkar) Sigríður Vigfúsdóttir, Prímet Talaði um rækjuskel og afurðir. - Kítosan = megrunarefni? Einar Lárusson, Þorbjörn Saltverkefni, noktun á notuðu salti. Frá Túnis eru flutt 60-100 þús tonn árlega til Íslands. 50% til matar og 50% á götur Páll Scheving, Ísfélag Vestmanneyja. Hafnir í Vestmannaeyjum og Þórshöfn - Endurunnin olía notuð - Fá ekki rafmagn úr landi og neyðast til að keyra á olíu og borga tilheyrandi refsigjald. Margir aðrir góðir punktar komu fram sem ekki verður fari í hér. Góður dagur, takk fyrir okkur Hlynur og Kolbrún.
0 Comments
Við Jóhanna fengum ógurlega skemmtilegt verkefni í hendurnar þegar allir skólakrakkar úr tilteknum skóla í Garðabæ komu upp í Sandahlíð til að gróðursetja birkiplöntur. Skarinn var mikill og tíminn var naumur. Eftir áratug eða svo munum við sjá afraksturinn.
Hér að neðan eru nokkar myndir af vetvangi. Þessa dagana er unnið við umhirðu í Smalaholti. Aðallega verið að snyrta furur, tvítoppaklippa og uppkvista. Passað er upp á að uppvista ekki öll trén eða hversu hátt er farið. Þar spilar ásýnd frá ýmsum stöðum og stígum mestu máli, sem og lögun trjánna. Það spilar margt inní. Þar sem greinarnar á furunni eru sverar og voldugar er mest notað við keðjusög, en stundum er gripið til handklippa og handasaga. Ekki er þó mikið um að tré eða sverir stofnar séu felldir, aðalleg er hér verið að tala um að gera trén snyrtileg og greinar liggja í skógarbotninum, niður bútaðar.
Myndir hér neðar sýna aðstæður í furureit og lerki. Ég hef verið að skyggnast eftir mögulegum jólatrjám á svæðinu en mér finnst ekkert koma til þess, amk ekki enn. Umferðaröryggi hjólandi ferðalanga á aðalveginum er ógnað vegna þröngra aðstæðna og hraðs aksturs vélknúnnu ökutækjanna. Því hef ég velt fyrir mér hvort ekki með beina hjólareiðamönnum á að fara hestastíginn. Það er ekki bara öruggara, heldur einnig skemmtilegra og fallegra, að mér finnst. Á neðstu myndinni er búið að bæta við auka skilti við reiðleiðarskiltið, það var gert í photoshop. |
KviklandFréttir af hinu og þessu þegar það á við. Geymsla
December 2022
Flokkar |