Framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda (LSE)Á nýju ári tók Hlynur við stóðu Framkvæmdasjóra LSE af góðri vinknu, Hrönn Guðmundsdóttur. Hrönn mun setja hann beuur inn í stöðuna framan af ári og það á eftir að koma í ljós hvernig það gengur.
hlynur@skogarbondi.is er því nýja netfangið sem hann notar í nýju vinnunni sinni. Einnig verður hann að gera kynningarefni fyrir Skógræktina.
0 Comments
Dagverðarnes í Skorradal er verkefni næstu vikna. SUNNUDAGAUR 17.september kl 14:00. Heiðrún og Jóhannes (Jói) tóku á móti og mörgum puktum var velt upp. Ágúst kom við um 17 leytið ásamt Tryggva verktaka en hann mun færa til jarðefni. ÞRI 26.9 Kom kl 18:00 og var í banastuði. Gekk smá berserksgang neðantil eins og fyrri daga. Leit svo upp fyrir hús og sagaði smá víði sem ég svo dróg út á tún fyrir hestana (líka það að ég var ekki viss hvað ég ætlaði að gera við afsagið). Auk þess flaug ég létt með dron í upphafi, enda fallegt veður. MÁN 2.okt 2017 kl 17-19 Náði tveimur tönkum eða svo. Þrennt ber að nefna. 1. Búið er að slétta planið við pallinn, gott mál. 2. Ég hóf að fella við túnhliðið/bílastæðið. Þar eru stærri tré og þyngri, fleiri greinar og lækur. Ég vil helst ekki vinna þarna í frosti með klakabrynju í og við lækinn. 3. Mér brá heldur betur þegar ég felldi ösp í átt að húsinu. Ég sá fyrir mér að tréð félli ekki á húsið og til að vera öruggur tók ég felliskurð frekar hátt upp í tréð. Ég felldi, sá ekkert athugavert þaðan sem ég stóð. Allt virtist hafa gengið sem skildi, en... þegar ég var að kvista tréð sá ég að þakrennan var skökk akkurat í felliátt við tréð. Við nánari skoðun sá ég að tréð hefði ekki geta fallið á hana, trjátoppurinn var um tvo metra frá húsinu. Ég furðaði mig á þessu svolitla stund. Þegra heim var komið skoðaði ég gamlar myndir sem ég hafði tekið og þá andaði ég léttar. Þetta hafði verið svona allan tíman, hjúkk. Leiðinilegt samt að hún skuli vera bogin. MIÐ 4.okt kl 16-19 Gekk vel, 3 tankar. Helst að ilmolíufræðingurinn Hraundis sýndi áhuga á að fá að nota barr/greinar fallina grenitrjáa. Það er örughlega bara vinsælt, en best að spyrja samt. Dísa var með í dag en henni leiðast keðjusagaóhljóð og grenigreinar í feldinum. MIÐ 11.okt 16-19 3 tankar. Tímamót, 5 l af bensíni búið (bensíntankurinn) og 2 l af Repjuolíu búið. Nú þarf að kaupa meira. Gekk vel, kominn í furu sem er krækklót eftir því. Bekkur er í smíðum. Myndskeiðið hér neðar er einmitt tré sem verður annar fóturinn undir bekkinn.
FIM 9.11 16-18 1 tankur Snjór. Þegar ég kom voru hestarnir komnir út úr gigðingunni, eða öllu heldur, yfir girðinguna sem hafði lagst útaf af snjóþunga. Ég bakkaði því bílnum í skjól og hóf sögn. Mikið rosalega rökkvar snemma. En það gekk samt vel, í fyrsta skipti lenti ég tvisvar í hangandi tré. Varð þú ekki vesen. Ágúst kom við rökkur og lokkaði hestana inn í hólfið aftur. Eins og í sögu. Fös 10.11 2 tankar og bensínbrúsi nr 2 tómur Annar bekkur kominn upp. Myrkraverk, skemmdarverk og furðuverk. Næstum tilbúinn. MÁN 20.11 kl 15-17 2 tankar Fínn dagur, nokkur tré niður, ekkert áhugavert að öðru leiti. BrÞRI 21.11 kl 15-17 1 tankur Svakalegt svekkelsi. Þegar ég kom var ég í góðu stuði, nýbúinn að hlægja UPPHÁTT af tveimur bröndurum á Bylgjunni. Ég var kominn frekar snemma og það var vel bjart, reyndar var veðrið eitthvað að gera sig líklegt. Í góðum gír geng ég til skógar, saga nokkur tré og allt gengur vel, þannig séð. Fyrst tankurinn er búinn og enn bara nokkuð bjart og ég án þess að hika ætla ég að fylla á annan tank... tjón. Olíutankurinn var opinn og tappinn hvergi sjáanlegur (sem skýrir hver vegna mér fannst sögin vera með lítið bit. Ég ætla ekki að saga án keðjuolíu, það bara má ekki. Ég hef sossum lent í þessu áður, þá í Skriðdal á Héraði fyrir um 7 árum. Þá, líkt og nú hætti ég að saga og hafði ekkert annað að gera en að leita tappans, liggjandi innan um greinar grenisins. Ég færði til greinar og tók til léttlega meðan ég skimaðu tappans. Hvernig væri að hanna keðjusög með íhluti í skærum litum. Eftir smá stund var mér farið að kólna (þrátt fyrir góðan klæðnað) og ég gafst upp á að leita að svörtum tappa í skógarbotni fullum af greinum. Nú hef ég tínt saxi (á fyrsta degi, það er undir aspagreinahrúgunni við bílastæðið). Þá skemmdist loftlekatappinn fyrir keðjuolíuna á brúsanum og nú tappinn á söginn tíndur. Þá er bara að vona að þeir eigi svona tappa í Garðheimum. Ekki verður sagað meir þessa viku. Brandararnir á Byogjunni voru þessir, Blaðafyrirsagnir: Bændur elta rollur á fjórhjóli Leoncie reið erlendum fréttamönnum. MÁN 27.11.2017 kl 15-17 2 taknar Kominn með nýjann tappa í sögina. Keypti reyndar nýtt sax líka, en notaði það sama og ekkert. Gekk vel en það var Ískalt. Ég klæddi mig fremur illa og var að krókna undir lokin. Svolítið bras með tvístofna, væntanlega mikið álagssvæði. Næstu skref, hugmyndir: - Ég sé fyrir mér að tvo tanka þurfi til að klára grenið í horninu færst húsinu. 2T - Furan það niður með er krækkjótt og frekar ljót, er að hugsa um að láta hana eiga sig. Kannski rétt að narta lítillega. 1T - Blandið í túnhorninu ætti ekki að fella of mikið úr heldur, en gott er kannski að spandera smá tíma í minniháttar tiltekt. max 5T Samtals 8 áætlaðir tankar, eða um 4 dagar (miðað við 2 tanka á dag) Hugmynd. Við bíslagið (í horninu sem sérst á myndinni) mætti gera rekka fyrir eldivið á auðveldan hátt. Aðgengilegt í þokkabót, bæði til að sækja og fylla (þar sem efnið er innan seilingar). Ég sé fyrir mér tvöfalt hólf (framan og aftan) þar sem bolirnir eru um 25 cm langir (fer eftir kamínunni). ÞRI 28.11.2017 kl 15:00-17 2,5 tankar Ég var að vinna með Skógrætinni í Skorradal í dag og var búinn mun fyrr en ég þorði að vona. Berserksdagurinn. Ég lagði hart að mér að vinna hratt og með djöfulgangi í dag. . Verkið var held ég ekkert verr unnið, en ég koms yfir meira en ég þorði að vona... enda klukkan vel gengin á sex þegar ég varð að stoppa vegna myrkurs. Líklega má sjá djöfulganginn á mér í furunni, en ég leyfði mér það, ég var í furunni, ekki greninu. Grenið: ég sá á greninu (uppi í horninu fjær) að mikið hafði mætt á þeim. Ég skildi því eftir ögn þéttara en það var samt ekkert auðveldara í sjálfu sér. Greinar og margstofna tré sáu til þess. Furan: Flestar þessara trjáa hafa fengið að kenna á því í gegnum tíðina. Ég felldi því ekki marga stofna, tók frekar stórar greinar svo þetta væri ögn aðgengilegra. Auk þess að líkelga er auðveldara að taka girðinguna, eða greinarnar sem voru inn á milli mörkvanna frá núna. Blandaða svæði við túnið: Það er eitthvað sem segir mér að ég skuli bara skilja það eftir eins og það er, amk að sinni. Nú er búið að opna töluvert undir reitinn og viðbúið að meira blási í gegnum hann í vetur. Hann er þó enn það þéttur að hann virkar sem skjól. Nú er hann fallegur, aðgengilegur og greinar og smærri tré hafa verið söxuð í skógarbotninn og mögulega gönguleið sléttuð með þeim (amk í grenihlutanum. Næstu skref er að fá viðbrögð eigenda. mantekt Sögunin - Rétt tæplega 3 bensíntankar fóru í þetta eða um 15 l af blönduðu bensíni - Líklega 5-8 lítrar af repju-matarolíu (keðjuolía), veit ekki alveg. - einn olíltappi er einhversstaðar undir greinum. - smávægileg keðjuóhöpp, engin alvarleg. - Ett sax á kafi í greinum, (nýtist vonandi eigendum þegar þeir finna það). Efniviður - Tveir rómantískir setubekkir - Tveir ógreinilegir glasastandar (ef þeir halla ekki of mikið) - Slatti af efni sem vert er að draga út. Má nota þær lengstu í sperrur eða girðingarstaura. + - Annar efniviður er tilvalinn í eldivið. Nú þarf bara að saga í lengd (eftir kamínu) og kljúfa - Eldiviðarskýli væri tilvalið við býslag, þar sem efnið er það rétt hjá. Tímar tjahh. .Þá er verkinu lokið, reikningur komin ná áfangastað og verkkaupar ánægðir búnir að taka út vekrið. Hlynur tók verkið líka og hér eru nokkur orð. Reikningurinn er niðri í kjallara ásamt brúsunum af þeirri sagkeðjuolíu sem fór í verkið.
- Óþarfi að færa til greinar. Snjór mun brjóta þetta fínna niður sem þegar er. Við verkið var lagt upp með að choppa allar greinar smátt til að hraða niðurbrot. Auk þess sem graunum var komið fyrir milli þúfna til að slétta yfirborð eða eins og í einu tilviki var slétt undir stíg í hliðarhalla. Á einum stað var reyndar ein frekar stór hrúga, hún var við hlið bekksins sem er inni í tré. - Tréð með bekknum, búast má við að það sé varanlega skemmt. Ef svo, er best að saga það niður. - Bekkirnir, vert að að skrúfa undir þá einni til tveimur skrúfum til að festa þá enn betur. - Fjölstofna Reynitréð á eftir að eiga uppreysn æru umlukið greni. Það verður fallegt á haustin þegar (vonandi þegar) það krækir sig upp með trjátoppum grenitrjánna. - Það er í lagi að fara með greinasagir og snyrta til og uppkvista tré og tré. Varast skal þó að uppkvista of mikið trén efst, helst skilja þau eftir eins og þau eru. - Furuveggurinn, hann var léttlega sagaður innanúr. Gott væri að snyrta aðeins betur, en þó ekki nauðsynlegt. - Greinahrúgan neðst, heima við bæ, hana ætti að fjarlægja og helst ofaní einhverja gjótu sem það brotna niður, t.d. mætti brjóta það niður milli þúfna til að leggja stíg? -Bolina sjálfa má annað hvort eða bæði að saga í eldivið eða sperrur í girðingu / staura. t.d. aflstaura uppi á Fjalli. Það má bjóða Baldri girðingaverktaka að nota það ef hann vill. Dásemdarreiturinn í Dagverðarnesi. „Fátt er yndislegra en að vera úti í skógi og snyrta tré“. Nemendur á námskeiði í ungskógaumhirðu eru algerlega sammála þessari fullyrðingu enda gátu hvorki þeir né leiðbeinendur hamið sig í skóginum, það var svo gaman. Þetta er í sjötta skiptið á sjö árum sem þau Hlynur Gauti Sigurðsson og Sherry Curl eru leiðbeinendur á námskeiði í ungskógarumhirðu. Fyrstu fimm voru haldin á vegum Héraðs- og Austurlandsskóga og var það fyrsta haldið haustið 2010. Oftast hefur það verið haldið í kjölfarið af Trjáfellingar- og grisjunarnámskeiði sem haldið hefur verið af Björgvini Eggertssyni hjá Landbúnaðarháskóla Íslands en í ár var undantekning frá þeirri venju. Kennsla fór fram á tveimur dögum. Fyrri dagurinn (fös 20.okt) var innandyra á höfuðstöðvum Skógræktarinnar á Egilsstöðum og var farið vel yfir fræðilegan og fjárhagslegan ávinning skógarumhirðu. Síðari dagurinn (lau 21.okt) var úti og fór fram í þjóðskóginum á Höfða. Veðrið var kyrrt og hlýtt og það hélst þurrt allan daginn. Eins og á fyrri námskeiðum var Þröstur Eysteinsson, skógræktarstjóri, með í för seinni daginn en það var verklegur dagur sem megin áherslan var á verkliði á borð við tvítoppaklippingu, snyrtingu, uppkvistun og val á trjám við millibilsjöfnun. Þátttakendur voru: Róbert Davíðsson, Jakob Þór Davíðsson og Pétur Hjartarson, frá Flögu, Andrés Einarsson frá Bessastöðum, Gísli Örn Guðmundsson og Þórarinn Þórhallsson frá Þorgerðarstöðum, Kristján Jónsson frá Hjartarstöðum, Maríanna Jóhannsdóttir frá Snjóholti og Magnús Karlsson frá Hallbjarnarstöðum. Til gamans má geta að á fyrsta námskeiðinu 2010 var tekin hópmynd með nýsnyrtan skóg í bakrunni. Þá var skógurinn einstaklega illa á sig komin og trén meira og minna fjölstofna, fjöltoppa, grófgreinótt og bogin. Hópmyndin sem tekin var núna, er frá svipuðu sjónarhorni og þar má sjá feikilegan vöxt beinvaxinna lerkitrjáa 7 árum síðar og því um ólíkt betri skóg að ræða en hér áður var lýst. Umhirða ungskóga borgar sig margfalt. Höf: Hlynur, Frétt kom einni fram á skogur.is Það er rándýrt að fara til tannlæknis á Íslandi, hvað þá að tala við hann líka. Við Benni vorum á röltinu í Gdansk og rákumst á Dental Clinic (Klinika Stomatologiczna, Anna Dental Clinic, 80-835 Gdansk, ul Szeroka 119/120, Poland). Klukkan var um 10.00 og ég stökk inn og spurðu hvort það væri laus tími í dag. Um kl 13:30 var ég kominn í stólinn. Andrúmsloftið var gott og ekki þessi klassíska tannlæknalykt á göngunum. Tannlæknirinn var hress en virðulegur og vel máli farinn á enskru tungu. Dr. Marcin Korn bauð mig velkominn með virtum og eftir stutt spjall sagði hann mér að hann hafi einu sinni áður fengið íslending í stólinn til sín og hann var jafn jákvæður í fari og ég, það var gaman að heyra. Klinkan var líka vel máli farin. Ég hafði beðið um einfalt eftirlit sem hann gerði og hann sá eina skemmda tönn, neðri vinsti jaxl. Hann spurði hvort hann ætti að laga og jeg jánkaði. Hann spurði hvort ég vildi deifingu og ég jánkaði aftur. Eftir stutta stund var aðgerðinni lokið með "Big Filling" og ég gekk glaður frá borði með reikning upp á 330 pólsk slots eða um 10.000 íslenskar krónur. Viðbrögð mín má sjá hér neðar. PS. ótengt tönnum. Hér má sjá link á frétt þar sem við ferðalangar komum fyrir í hjá Pólsku skógrækt ríkisins. Ég fékk leyfi frá Skógæktinni (Þresti) til að kaupa Drone fyrir nokkru. Tilgangurinn er aðallega að nota hann tli að gera kynningar myndbönd fyrir skógræktina og bind ég miklar vonir við að hann verði magnaður. Í síðustu viku keypit ég stjórnborðið í fríhöfninni, það var iPhone7. Í lok föstudagsins fékk ég svo afhentan Droninn og það allt fyrir tilstilli Inga R Ingasonar. Ingi hefur verið mér stoð og stytta í gegnum þetta allt. Þegar ég hafði sótt flygildið í iStore Kringlunni brá ég mér niður í Nýherja til að hitta Inga. Þar sem ég gat ekkert aðhafst í drónamálum um kvöldið fékk ég Inga til að geyma hann og garfast meða hann. Hann var meir en til í það, enda þaulvanur drónamaður. Hann kom upp með nafnið Skógarfugl og hér eftir mun það festast við hann, Skogarfugl-att-gmail.com . Á laugardegininum hitti ég svo Inga aftur þegar við ætluðum að prófa hann, en vegna vonda frestuðum við æfingum en fórum bara yfir tæknilega hluti. Í dag, sunnudag, fór ég svo með skógarfuglinni upp í Heiðmörk til að prófa og ég flaut í 55 mínútur og þetta var hrikalega gaman, enda gekk þetta áfallaluast fyrir sig.
DJI MAVIC heitir skógarfuglinn, hann fékst með afslætti á 190.000kr í iStore iPhone7 kostaði 103.000 kr í fríhöfninni, elko. Þetta er því kostnaður upp á 300.000 kall í startið. París er frægust fyrir Effelturninn (sjá eftirlíkingu af Effel turninum á mynd 1, tekin skömmu áður en ferðin var tilkynnt öllum ferðalöngum) París er falleg, hrein og eftirsóknarverð borg. Um helgina skruppum við yfir til Frakklands og lentum ía Charles De Gaulle flugvellinum eftir svo spennandi nætuflug að ekkert okkar náði að blunda. Við lentum því ósofin, héldum um nokkra ranghala (mynd 2), og rétt náðum í sortann (sorte þýðir sko Exit). Þar hvíldum við okkur lítillega og loksins fórum við aftur af stað skömuu fyrir hádegið með rútu sem hét Magical Disney bus. Á þeirri klst löngu leið sváfum við uns við stoppuðum fyrir utan Euro Disneyland. Þar skoðuðum við okkur léttilega um og héldum svo áfram á okkar framtíðar svefnstað fyrir næstu daga.
Gaman væri að skrifa meira um ferðina, en einnig er gott að koma þessu frá sér svona. Stórkoslegt páskafrí að baki. Hlynur, Kolbrún, BáraBjörg og Raggi skelltu sér noður á Akureyri. Þau fengu þau að vera gestarisar hjá Jóni Rafnari, Fríði Finnu og Önnu Gunnhildi. Mest allan birtutímann vorum þau upp í Hlíðirfjalli á skíðum. Miklar framfarir hjá all flestum, líklega mestar hjá Ragga, þar sem hann kom sá og sigraði byrjandabrekkuna. Hér að ofan eru þau BBÓ og JR upp á sitt besta í brekkunum. Eftir skíðaeril hvers dags var farið heim í Víðilund12 þar sem skoðaðar voru ungtrjáplöntur JRs. Trén tvö í fjarska eru samskonar þeim tveim í kassapottinum nær, sem sagt eik, sprittið af akorni móður sinnar sem fest hefur rætur í Lergravsparken í Köbenhavn/DK. í miðjunni fær er nýjasta djásnið, heslihneta og Gingo þetta stóra. Ekki gafst tími vegna glaums, gleði og skíða til að taka fleiri myndir.
Kvikland hefur haft puttana í nokkrum youtube reikningum og nú bætist skógræktin við. Væntanlega verður helst að finna video þar á næstunni.
Reikningar til þessa: - Skógræktin - Kvikland - Out and Play - Hlynur Sigurðsson - Héraðsskógar - Austurvarp Árið 2016 hjá Kviklandi leið hratt og margt gerðist.
Frá 1.mars -31.des starfaði Hlynur fyrir Skógræktarfélag Reykjavíkur og lenti þar í ýmsum ævintýrum. En fyrst tók hann vinnuvélaréttindi. Heiðmörk og Múlastaðir í Flókadal voru hans helsti vinnuvettvanur og Sævar hans helsti starfsbandamaður ásamt Gústafi og Helga Gísla. Þakka ykkur strákar fyrir góðar stundir. Auk þess komu margir kynlegir kvistir við sögu, íslenskir sem og erlendir. Hlynur velti Hilux í febrúar en slapp hann og hans farðþegi, Setafán, við meitiháttar skaða og Hilux varð úr sögunni. 1. mars var Landcruserinn keyptur þökk sé tryggingum. 5. okt leið yfir Hlyn í sundi í Brogranesi, en það lagaðist með tímanum. 21.okt skall tré á haus Hlyns með varanlegum hálsáverkum við vinnu sína við grisjun þegar tré féll á höfuð hans. Eymslin eru nú að lang-mestu farin en enn heyrir Hlynur brak í hálsi. Hrakkfallaárið hans Hlyns. Kolla tók meirapróf og fór að keyra rútur dag eftirdag sumar vikurnar. 2017 byrjar vel. Hlynur starfar nú sem skógræktarráðgjafi hjá nýrri stofnun, Skógræktin. Hans fasta bækistöð er á Hvanneyri. Kolla er komin með stöðu hjá IcelandAir í þjónustuveri. Starfsstöðin er við Loftleiði í Rvk. Varðandi Out and Play, þá bíður enn eitt video verkefni eftirvinnslu, en það stendur til að klára það, það var samt tekið upp í ágúst svo tíminn líður hratt. Vonandi ná þau hjúin að sópa saman eins og einu eða tveimur ævintýravideoum í sumar. Nú er bara að sjá hvað gerist næst. Góðar stundir. Um síðustu helgi var haldið frækilegt frænámskeið í Heiðmörk. Af því er nú komið myndband sem birst hefur á tveimur netmiðlum. Annarsvegar á heidmork.is og hinsevegar skogur.is þar sem Pétur Halldórsson kynnir myndbandið inn.
Af starfsmönnum Kviklands er eftirfarandi að frétta. Hlynur hefur nú starfað hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur frá í mars. Hann mun vinna þar fram yfir jólavertíð og kveður þá frábærann starfsvöll ásamt flottum drengjum. Á nýju ári mun hann starfa fyrir nýja stöfun "Skógræktin" og er starfið annarsvegar fólgið í skógarráðgjöf á Vesturlandi og hinsvegar í kynningarmálum. Í vor tók Kolbrún Meirapróf og hefur hún keyrt rútur af öllum stærðum og gerðum allar götur síðan. Einnig lærir hún til Leiðsögumanns við Menntaskólann í Kópavogi. |
KviklandFréttir af hinu og þessu þegar það á við. Geymsla
December 2022
Flokkar |