kvikland
  • Fréttir
  • Verkefni
    • Skógar >
      • Kortlagning
      • Umhirða
      • Gróðursetning
    • Garðahönnun
    • Innanhússhönnun
    • Video
    • Umbrot
    • Verðskrá
  • Um Kvikland
    • Ýmislegt >
      • Litabækur
      • Lacer-timburmunir
      • THE TURF
  • English

Dagverðarnes, grisjun.

10/24/2017

0 Comments

 
Picture
Picture

Dagverðarnes í Skorradal er verkefni næstu vikna.

SUNNUDAGAUR 17.september kl 14:00.
Heiðrún og Jóhannes (Jói) tóku á móti og mörgum puktum var velt upp. Ágúst kom við um 17 leytið ásamt Tryggva verktaka en hann mun færa til jarðefni.
Picture
Picture

MIÐ 20.9
Gekk vel en sagaði í grjót eftir 1/2 tank og varð að hætta, var horki með brýni né auka keðju. ​
Picture

ÞRI 26.9
Kom kl 18:00 og var í banastuði. Gekk smá berserksgang neðantil eins og fyrri daga. Leit svo upp fyrir hús og sagaði smá víði sem ég svo dróg út á tún fyrir hestana (líka það að ég var ekki viss hvað ég ætlaði að gera við afsagið). Auk þess flaug ég létt með dron í upphafi, enda fallegt veður.
Picture
Picture
Picture

MÁN   2.okt 2017   kl 17-19
Náði tveimur tönkum eða svo.  Þrennt ber að nefna.
​1. Búið er að slétta planið við pallinn, gott mál.
2. Ég hóf að fella við túnhliðið/bílastæðið. Þar eru stærri tré og þyngri, fleiri greinar og lækur. Ég vil helst ekki vinna þarna í frosti með klakabrynju í og við lækinn.
3. Mér brá heldur betur þegar ég felldi ösp í átt að húsinu. Ég sá fyrir mér að tréð félli ekki á húsið og til að vera öruggur tók ég felliskurð frekar hátt upp í tréð. Ég felldi, sá ekkert athugavert þaðan sem ég stóð. Allt virtist hafa gengið sem skildi, en... þegar ég var að kvista tréð sá ég að þakrennan var skökk akkurat í felliátt við tréð. Við nánari skoðun sá ég að tréð hefði ekki geta fallið á hana, trjátoppurinn var um tvo metra frá húsinu. Ég furðaði mig á þessu svolitla stund. Þegra heim var komið skoðaði ég gamlar myndir sem ég hafði tekið og þá andaði ég léttar. Þetta hafði verið svona allan tíman, hjúkk. Leiðinilegt samt að hún skuli vera bogin.
Picture
Picture
Picture

MIÐ 4.okt kl 16-19
Gekk vel, 3 tankar.
Helst að ilmolíufræðingurinn Hraundis sýndi áhuga á að fá að nota barr/greinar fallina grenitrjáa. Það er örughlega bara vinsælt, en best að spyrja samt.
Dísa var með í dag en henni leiðast keðjusagaóhljóð og grenigreinar í feldinum.
Picture
Picture

MIÐ 11.okt 16-19
3 tankar.    Tímamót, 5 l af bensíni búið (bensíntankurinn) og 2 l af Repjuolíu búið. Nú þarf að kaupa meira. 
Gekk vel, kominn í furu sem er krækklót eftir því. Bekkur er í smíðum. Myndskeiðið hér neðar er einmitt tré sem verður annar fóturinn undir bekkinn. 

ÞRI 24.okt 17-18
2 tankar
Það er greinilega kominn vetur. klukkan var um 18:15 og ég þurfti að hætta vegna myrkurs. Aðallega var unnið við kengbogna furu í dag en eitt og eitt greni fellt. t.d. þessi stóri grenibolur sem sjá má á myndinni. 
Picture

Picture
MIÐ 25.okt 16-18
2 tankar og keðjuvandræði
​    Fór í furuflækjuna uppi við lækinn, ákvað að henni væri lokið þó enn stæði þétt. Annars verður opnunin kannski of mikil fyrir vind.     Tvö keðjuvandamál eltu mig í dag. Keðjan fór af (sem er ekki stór mál) og keðjan rakst í eitthvað fast, líklega stein (sem ég sá reyndar aldrei). Eftir myrkur notaði ég drjúgan tíma í að brýna keðjuna.
   En eitt finnst má áhugavert. Einn hestur, sem greinilega er hluti af stóðinu innan girðingar, er laus. Hann fer þó ekkert, hann er bara þarna hjá vill greinilega komast til stóðsins.
     Annað, ég skellti upp smá bekk (sjá mynd) til að tilla sér á. Hefði kannski átt að vanda mig betur, en ég vildi ekki missa of mikinn tíma við að fella tré.  

MIÐ 1.nóv 16-18
3 tankar
Vel gekk. 
Gústi var á svæðinu, hann var að fást við girðingu. 
Mest staldraði ég við í greni, en í myrkrinu eftir 18 vann ég aðeins í birkinu þar sem ég sá "aðeins" betur til. 
Picture

Picture
Picture
ÞRI 7.11   16-18+
3 tankar 

Hestar nutu hæstu gæða
hófstilltir á sinni beit
Bitu gras og kosti kræða
kostulegt er upp í sveit

Í fyrsta skipti gleymdi ég símanum inni í húsi, en tók hann ekki með mér upp í brekku. Mér lá á að nota birtuna. Einnig var Ágúst heima svo mögulega hefur hann fyllt upp öryggiskennd svo ég þurfti ekki öryggistækið, sem síminn er. EN fyrir vikið var ekki tekin mynd í britu, bara í rökkri.

- Mögulegt er nýtt stæði fyrir bekk í sjónmáli.

​​- Aspirnar á gresjunni fengu snyrtingu að neðan. 

 FIM 9.11   16-18
1 tankur

Snjór. Þegar ég kom voru hestarnir komnir út úr gigðingunni, eða öllu heldur, yfir girðinguna sem hafði lagst útaf af snjóþunga. Ég bakkaði því bílnum í skjól og hóf sögn. Mikið rosalega rökkvar snemma. En það gekk samt vel, í fyrsta skipti lenti ég tvisvar í hangandi tré. Varð þú ekki vesen. 
Ágúst kom við rökkur og lokkaði hestana inn í hólfið aftur. Eins og í sögu. 
​
Picture
Picture

Fös 10.11
2 tankar og bensínbrúsi nr 2 tómur

​Annar bekkur kominn upp.
​Myrkraverk, skemmdarverk og furðuverk.
Næstum tilbúinn.
Picture

SUN 19.11   kl13-17
4 tankar
Lengsti og án efa sá erfiðasti. Alveg búinn !!!
Ég rakst þó á fjölbýli og ýmislegt kemur í ljós í botninum, líkist grjóthleðslu. 
- Lagðist svo yfir sögina og dittaði létt að keðjunni.

- Fjölbýlið er á keðjusagamyndinni, uppi til vinstri. 
- Bekkurinn nýji í ljósi.
Picture
Picture
Picture

MÁN 20.11  kl 15-17
2 tankar

Fínn dagur, nokkur tré niður, ekkert áhugavert að öðru leiti.


BrÞRI 21.11  kl 15-17
1 tankur

Svakalegt svekkelsi. Þegar ég kom var ég í góðu stuði, nýbúinn að hlægja UPPHÁTT af tveimur bröndurum á Bylgjunni.  Ég var kominn frekar snemma og það var vel bjart, reyndar var veðrið eitthvað að gera sig líklegt. 
Í góðum gír geng ég til skógar, saga nokkur tré og allt gengur vel, þannig séð. Fyrst tankurinn er búinn og enn bara nokkuð bjart og ég án þess að hika ætla ég að fylla á annan tank... tjón. Olíutankurinn var opinn og tappinn hvergi sjáanlegur (sem skýrir hver vegna mér fannst sögin vera með lítið bit. Ég ætla ekki að saga án keðjuolíu, það bara má ekki. Ég hef sossum lent í þessu áður, þá í Skriðdal á Héraði fyrir um 7 árum. Þá, líkt og nú hætti ég að saga og hafði ekkert annað að gera en að leita tappans, liggjandi innan um greinar grenisins. Ég færði til greinar og tók til léttlega meðan ég skimaðu tappans. Hvernig væri að hanna keðjusög með íhluti í skærum litum. Eftir smá stund var mér farið að kólna (þrátt fyrir góðan klæðnað) og ég gafst upp á að leita að svörtum tappa í skógarbotni fullum af greinum. 
Nú hef ég tínt saxi (á fyrsta degi, það er undir aspagreinahrúgunni við bílastæðið). Þá skemmdist loftlekatappinn fyrir keðjuolíuna á brúsanum og nú tappinn á söginn tíndur. Þá er bara að vona að þeir eigi svona tappa í Garðheimum. Ekki verður sagað meir þessa viku. 
Brandararnir á Byogjunni voru þessir, Blaðafyrirsagnir:
Bændur elta rollur á fjórhjóli
Leoncie reið erlendum fréttamönnum.
Picture

MÁN 27.11.2017   kl 15-17
2 taknar

Kominn með nýjann tappa í sögina. Keypti reyndar nýtt sax líka, en notaði það sama og ekkert. 
Gekk vel en það var Ískalt. Ég klæddi mig fremur illa og var að krókna undir lokin.
Svolítið bras með tvístofna, væntanlega mikið álagssvæði.

Næstu skref, hugmyndir: 
- Ég sé fyrir mér að tvo tanka þurfi til að klára grenið í horninu færst húsinu.  2T
- Furan það niður með er krækkjótt og frekar ljót, er að hugsa um að láta hana eiga sig.
    Kannski rétt að narta lítillega. 1T
- Blandið í túnhorninu ætti ekki að fella of mikið úr heldur, en gott er kannski að spandera smá tíma í minniháttar tiltekt. max 5T
Samtals 8 áætlaðir tankar, eða um 4 dagar (miðað við 2 tanka á dag)


Hugmynd. Við bíslagið (í horninu sem sérst á myndinni) mætti gera rekka fyrir eldivið á auðveldan hátt. Aðgengilegt í þokkabót, bæði til að sækja og fylla (þar sem efnið er innan seilingar). Ég sé fyrir mér  tvöfalt hólf (framan og aftan) þar sem bolirnir eru um 25 cm langir (fer eftir kamínunni).

Picture

ÞRI 28.11.2017   kl 15:00-17
2,5 tankar

Ég var að vinna með Skógrætinni í Skorradal í dag og var búinn mun fyrr en ég þorði að vona.
Berserksdagurinn.
Ég lagði hart að mér að vinna hratt og með djöfulgangi í dag. .  Verkið var held ég ekkert verr unnið, en ég koms yfir meira en ég þorði að vona... enda klukkan vel gengin á sex þegar ég varð að stoppa vegna myrkurs. Líklega má sjá djöfulganginn á mér í furunni, en ég leyfði mér það, ég var í furunni, ekki greninu. 
Grenið: ég sá á greninu (uppi í horninu fjær) að mikið hafði mætt á þeim. Ég skildi því eftir ögn þéttara en það var samt ekkert auðveldara í sjálfu sér. Greinar og margstofna tré sáu til þess. 
Furan: Flestar þessara trjáa hafa fengið að kenna á því í gegnum tíðina. Ég felldi því ekki marga stofna, tók frekar stórar greinar svo þetta væri ögn aðgengilegra. Auk þess að líkelga er auðveldara að taka girðinguna, eða greinarnar sem voru inn á milli mörkvanna frá núna. 
Blandaða svæði við túnið: Það er eitthvað sem segir mér að ég skuli bara skilja það eftir eins og það er, amk að sinni. 

Nú er búið að opna töluvert undir reitinn og viðbúið að meira blási í gegnum hann í vetur. Hann er þó enn það þéttur að hann virkar sem skjól. Nú er hann fallegur, aðgengilegur og greinar og smærri tré hafa verið söxuð í skógarbotninn og mögulega gönguleið sléttuð með þeim (amk í grenihlutanum. 

Næstu skref er að fá viðbrögð eigenda.

mantekt

Sögunin
- Rétt tæplega 3 bensíntankar fóru í þetta eða um 15 l af blönduðu bensíni
- Líklega 5-8 lítrar af repju-matarolíu (keðjuolía), veit ekki alveg. 
- einn olíltappi er einhversstaðar undir greinum. 
- smávægileg keðjuóhöpp, engin alvarleg.
- Ett sax á kafi í greinum, (nýtist vonandi eigendum þegar þeir finna það). 

Efniviður
- Tveir rómantískir setubekkir
- Tveir ógreinilegir glasastandar (ef þeir halla ekki of mikið)
- Slatti af efni sem vert er að draga út. Má nota þær lengstu í sperrur eða girðingarstaura. +
- Annar efniviður er tilvalinn í eldivið. Nú þarf bara að saga í lengd (eftir kamínu) og kljúfa
- Eldiviðarskýli væri tilvalið við býslag, þar sem efnið er það rétt hjá.

Tímar
​tjahh.

.Þá er verkinu lokið, reikningur komin ná áfangastað og verkkaupar ánægðir búnir að taka út vekrið. Hlynur tók verkið líka og hér eru nokkur orð. Reikningurinn er niðri í kjallara ásamt brúsunum af þeirri sagkeðjuolíu sem fór í verkið. 

- Óþarfi að færa til greinar. 
        Snjór mun brjóta þetta fínna niður sem þegar er. Við verkið var lagt upp með að choppa allar greinar smátt til að hraða niðurbrot. Auk þess sem graunum var komið fyrir milli þúfna til að slétta yfirborð eða eins og í einu tilviki var slétt undir stíg í hliðarhalla. Á einum stað var reyndar ein frekar stór hrúga, hún var við hlið bekksins sem er inni í tré.

- Tréð með bekknum, búast má við að það sé varanlega skemmt. Ef svo, er best að saga það niður. 

- Bekkirnir, vert að að skrúfa undir þá einni til tveimur skrúfum til að festa þá enn betur. 

- Fjölstofna Reynitréð á eftir að eiga uppreysn æru umlukið greni. Það verður fallegt á haustin þegar (vonandi þegar) það krækir sig upp með trjátoppum grenitrjánna. 

- Það er í lagi að fara með greinasagir og snyrta til og uppkvista tré og tré. Varast skal þó að uppkvista of mikið trén efst, helst skilja þau eftir eins og þau eru. 

- Furuveggurinn, hann var léttlega sagaður innanúr. Gott væri að snyrta aðeins betur, en þó ekki nauðsynlegt. 

- Greinahrúgan neðst, heima við bæ, hana ætti að fjarlægja og helst ofaní einhverja gjótu sem það brotna niður, t.d. mætti brjóta það niður milli þúfna til að leggja stíg?

-Bolina sjálfa má annað hvort eða bæði að saga í eldivið eða sperrur í girðingu / staura. t.d. aflstaura uppi á Fjalli. Það má bjóða Baldri girðingaverktaka að nota það ef hann vill. 

Dásemdarreiturinn í Dagverðarnesi. 
Picture
Picture
0 Comments



Leave a Reply.

    Kvikland

    Fréttir af hinu og þessu þegar það á við.

    Geymsla

    December 2021
    September 2021
    March 2021
    December 2020
    October 2020
    September 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    September 2019
    November 2018
    April 2018
    February 2018
    January 2018
    October 2017
    September 2017
    June 2017
    April 2017
    February 2017
    October 2016
    August 2016
    July 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015

    Flokkar

    All

    RSS Feed

kvikland@gmail.com

Proudly powered by Weebly
  • Fréttir
  • Verkefni
    • Skógar >
      • Kortlagning
      • Umhirða
      • Gróðursetning
    • Garðahönnun
    • Innanhússhönnun
    • Video
    • Umbrot
    • Verðskrá
  • Um Kvikland
    • Ýmislegt >
      • Litabækur
      • Lacer-timburmunir
      • THE TURF
  • English