Þetta var með sanni ólukkudagur. 1) sögin var biluð hjá Hlyni og tafði sú bilun allan hópinn í upphafi dags. Vídas hjálpaði sem betur fer til og fann hann vandamálið... laust kerti. 2) Hiluxinn rann til hliðar í slóðinni og út í birkikjarr. Okkur tókst þó að losa hann aftur en til þess þurfti að grisja kjarrið og henda grenum undir hjól bílsins. 3) Orri gleymdi lyklunum af skúrnum þar sem ýmsilegt smádót var, en það reddaðist. 4) Svo skall á stormur og náðum við því bara einum tanki hver áður en við létum staðar numið þennan daginn. Í video viðhengi má sjá Orra fella digurt tré í fullkomlega rétta felliátt miðað við storminn. ATH, það þarf smá tíma að hlaða sig. Aðrar myndir eru stemningsmyndir úr einu hléinu þegar kamínan var sem heitust.
0 Comments
Leave a Reply. |
KviklandFréttir af hinu og þessu þegar það á við. Geymsla
December 2022
Flokkar |