Þetta var vægast sagt stórkoslegur dagur. Fyrsti vinnudagurinn, Bjórdagur okkar Íslendinga.
Flott veður, kjurt, bjart og svolítill kuldi. Fyrsti vinnudagurinn í Heimörk hefst í Daníelslundi í Borgarfirði. Ég fór þangað með tveimur afsprengigóðum meisturum, þeim Lúkasi og Benjamín. Þeir koma frá Tékklandi og Danaveldi. Öndvegis herramenn. Í Daníelslundi er Kristján Már (enn einn meistarinn) við grisjunarstörf og ég gat ekki betur séð en að hann kunni enn til verka, jafnvel betri ef eitthvað er. Í Daníelslundi hittum við fyrir fleira afbragðs fólk. Friðrik Aspelund, SiggaJúlla, Hraundís, EinarGunn, Freydís, Brynjólfur, Aðalsteinn, Böðvar, Hallur og svo hitti ég fyrir nýja menn þá Jón Ásgeir og Brynjar (afsakið ef ég gleymi einhverjum). Við tíndum fullt af könglum, Ég tíndi heilan helling líka, en ég held að ég hafi lagt of mikið upp úr magni en gæðum, vonandi ekki samt. Eftir vinnu í dag fórum við Kolla og keyptum bíl hjá Bílasölu Guðfinns. TOYOTA LAND CRUISER. Drauðmur að verða að veruleika. Við Kolla erum afskaplega ánægð, nú er bara að biðja og óska þess að hann reynist okkur vel. Hann mun vonandi koma sér vel fyrir OUTandPLAY í sumar. (uppl. ekinn 228.000, árgerð 2002, sjálfskiptur, verð, óuppgefið) (myndir teknar af HGS, nema efsta tók Lúkas og neðstu tók Kolla stax eftir að kaupin gengu í gegn)
0 Comments
Leave a Reply. |
KviklandFréttir af hinu og þessu þegar það á við. Geymsla
December 2022
Flokkar |