Í dag fórum við Kolla í göngutúr um Tjarnoltin neðan við Vífilsstaðahlíð þegar við sáum nokkuð merkilegt. Við vorum að hugsa um að kíkja til þeirra strax, en ákváðum að ganga fyrst þar sem við ætluðum að vera komin á fyrirlestur með Andrési Arnalds sem haldinn var af Landvernd í þjóðgersemahúsið í hádeginu. Því gengum við um hraunið sem er allt mögandi í hellum og spennandi. Stórskemmtilegt svæði. Þegar við vorum komin úr göngunni ætluðum við að kíkja til þeirra. Þau voru nefnilega að kurla drumbana hans Benna. Þá geri ég ráð fyrir að þarna hafi verið félagar mínir þeir Gústi, Sævar og einhverjir fleiri. Jæja, gaman að því. Því brunuðum við í þjóðminjasafnið og hlíddum á Andrés.
Í fyrramálið bruna ég austur á land og hef gróðursetningu að Ási í Fellum. Eftir mánaðamótin er það svo Geirólfsstaðir í Skriðdal og svo bruna ég aftur í borgina. Ég geri því ráð fyrir að hér verði ekki bloggað næstu 3 vikurnar eða svo.
0 Comments
Leave a Reply. |
KviklandFréttir af hinu og þessu þegar það á við. Geymsla
December 2022
Flokkar |