kvikland
  • Fréttir
  • Verkefni
    • Skógar >
      • Kortlagning
      • Umhirða
      • Gróðursetning
    • Garðahönnun
    • Innanhússhönnun
    • Video
    • Umbrot
    • Verðskrá
  • Um Kvikland
    • Ýmislegt >
      • Litabækur
      • Lacer-timburmunir
      • THE TURF
  • English

Umhirðunámsekið á Vesturlandi

4/28/2018

0 Comments

 
Laugardaginn 14.apríl 2018 var haldið námskeið í ungskógaumhirðu á Hvanneyri af frumkvæði Félags skógarbænda á Vesturlandi. LBHI hélt utan um námskeiðið og var Hlynur Gauti Sigurðsson fyrirlesari með dyggri aðstoð Guðmundar Siguðrssonar, skógræktarráðgjafa á Vesturlandi. Frá árinu 2010-2017 höfðu þau Hlynur og Sherry Curl haldið samskonar námskeið á Fljótsdalshéraði, alls 7 skipti. Þetta áttunda skipti var því í fyrsta skipti sem það er haldin utan Austurlandsfjórðungs. Námskeiðið miðaði aðallega að umhirðu á lerki og furu. 

Morguninn fór fram innandyra í formi fyrirlestra um millibilsjöfnun (bilun/snemmgrisjun) og trjásnyrtingu (tvítoppaklipping, snyrting og uppkvistun). Eftir hádegið var farið í Steindórsstaði í Reykholtsdal þar sem húsráðandinn, Guðfinna Guðnadóttir, tók á móti okkur. Á Steindórsstöðum mátti finna ýmsar skógargerðir og fengu þáttakendur að meta skóg og sjá hvernig millibilsjöfnun fer fram. Trjásnyrtingum voru einnig gerð skil og skeggrætt mikið um ýmsar úrfærslur. Um kaffileytið var brunað sem leið lág í Logaland og hittum þar á Hraundísi Guðmundsdóttur, skógræktarráðgjafa á Vesturlandi og heimamann, en hún hellti upp á ketilkaffi og furunálate. Tekinn var stuttur göngutúr um svæðið þar sem danskur skóg-listamaður, Johan Grønlund, hafði unnið við gerð skúlptúra víðs vegar um svæðið. Námskeiðið endaði á nágrannajörðunum í Deildartungu og Gróf en þar voru tveir ólíkir lerkireitir millibilsjafnaðir tveimur árum áður. 


Þátttakendur á námskeiðinu voru 9 
Bergþóra Jónsdóttir, Hrútsstöðum í Laxárdal
Guðmundur Sigurðsson, Oddsstöðum í Lundareykjadal
Benedikt Eyjólfsson, Búðardal á Skarðsströnd
Margrét Beta Gunnarsdóttir, Búðardal á Skarðsstönd
Jón Zimsen, Innra Leiti Skógarströnd
Knútur Dúi Kristján Zimsen  Innra Leiti Skógarströnd
Guðbrandur Brynjúlfsson, Brúarlandi
Guðmundur Rúnar Vífilsson, Ferstiklu í Hvalfirði
Margrét Stefánsdóttir, Ferstiklu í Hvalfirði

https://www.skogarbondi.is/single-post/2018/04/20/Fallega-vaxa-ungsk%C3%B3gar
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
0 Comments



Leave a Reply.

    Kvikland

    Fréttir af hinu og þessu þegar það á við.

    Geymsla

    December 2021
    September 2021
    March 2021
    December 2020
    October 2020
    September 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    September 2019
    November 2018
    April 2018
    February 2018
    January 2018
    October 2017
    September 2017
    June 2017
    April 2017
    February 2017
    October 2016
    August 2016
    July 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015

    Flokkar

    All

    RSS Feed

kvikland@gmail.com

Proudly powered by Weebly
  • Fréttir
  • Verkefni
    • Skógar >
      • Kortlagning
      • Umhirða
      • Gróðursetning
    • Garðahönnun
    • Innanhússhönnun
    • Video
    • Umbrot
    • Verðskrá
  • Um Kvikland
    • Ýmislegt >
      • Litabækur
      • Lacer-timburmunir
      • THE TURF
  • English