Í dag fórum við Kolla í göngutúr um Tjarnoltin neðan við Vífilsstaðahlíð þegar við sáum nokkuð merkilegt. Við vorum að hugsa um að kíkja til þeirra strax, en ákváðum að ganga fyrst þar sem við ætluðum að vera komin á fyrirlestur með Andrési Arnalds sem haldinn var af Landvernd í þjóðgersemahúsið í hádeginu. Því gengum við um hraunið sem er allt mögandi í hellum og spennandi. Stórskemmtilegt svæði. Þegar við vorum komin úr göngunni ætluðum við að kíkja til þeirra. Þau voru nefnilega að kurla drumbana hans Benna. Þá geri ég ráð fyrir að þarna hafi verið félagar mínir þeir Gústi, Sævar og einhverjir fleiri. Jæja, gaman að því. Því brunuðum við í þjóðminjasafnið og hlíddum á Andrés.
Í fyrramálið bruna ég austur á land og hef gróðursetningu að Ási í Fellum. Eftir mánaðamótin er það svo Geirólfsstaðir í Skriðdal og svo bruna ég aftur í borgina. Ég geri því ráð fyrir að hér verði ekki bloggað næstu 3 vikurnar eða svo.
0 Comments
Guðmundur Hrafn Arngímsson hjá Landrek og samvindumaður í THE TURF fékk mig til að koma með sér á Patreksfjörð til að aðstoða sig við ýmis óleyst svakamál. Við keyrðum á laugardagsmorgni vestur. Góð ferð það og mikið rætt um heilsu og framtíð. Þegar á Vestfirðina var komið lág leið okkar í Tálknafjörð í Pollinn. Þar hittum við amerískt par, þau Jimmy og Sylvíu. Gott spjall, langt fram á kvöld og fram yfir miðnætti jafnvel.
Sunnudagurinn fór í sorteringu á flettiefni sem Valdi Skorrdal hafði fengið Gumma skömmu áður. Svo komu kanarnir og við buðum í te og spjall. Við spjölluðum fram að kvöldmat þegar við fórum og bjuggum til trésmiðju-aðstöðu og bjuggum til borðbekk (sjá mynd). Gummi hefur tökin á þessu og ég reyndi að aðstoða sem máttur var (var nefnilega hálf lasinn á meðan á þessu stóð). Við vorum komnir í koju eftir miðnætti. Mánudagur hófst loks, eftir góðan svefn. Við fórum í að flytja trésmiðjuna okkar milli rýma því bæjarstarfsmenn voru að aðhafast og við vorum eignilega fyrir þar sem við höfðum verið, sem var mjög gott því nýja aðstaðan er mun rýmri. Þá fórum við og löguðum nokkrar hríslur (gróðursetningar frá hausti) við annarsvegar Landsbankann og hinsvegar tjaldsvæðið. Um kvöldið var svo farið í að skoða timbur og bjuggum við til einn tveggjametra setubekk. Þriðjudagur byrjaði eftir hádegið. Hann var tekinn með áhlaupum og rumpuðum við af restinni í setubeggjunum og bættum meira að sea einum sérsmíðuðum við. Hann var einstaklega fínn. Enda var það gjöf til Einars og Helgu og fengum við sitt hvora tré-slaufunua (háls"tau") fyrir. Seint þetta kvöld fórum við svo með bekkinn til þeirra og þau buðu kaffi og kökur. Gott fólk. Miðvikudagur var svolítill kraftadagur, amk miðað við hina. Þá fórum við í skriðurnar við Patreksfjörð og fylltum 4 stórsekki af sérvöldu hleðslugrjóti. Það tók nú á. Merkilegt þetta fyrirbrygði "steinblinda". Maður sér fyrst fyrst helling af flöttum könntuðum steinum og svo eftir einhverja stund er eins og þeir hverfi allir. Alveg merkilegt. Gummi fékk eitthvað pínu tak í bakið svo við fórum í pollinn á Tálknafirði það kvöld líka. Fimmtudagurinn hófst ekki á að sofa út, við vorum konmir á fætur kl 6:30 því Rvk var á döfunni. Áður en við kvöddum fínan Patreksfjörðinn tókum við lítið innslag á leikskólalóðinni, en Gummi hafði unnið hana í fyrrasumar. Við sjáum fyrir okkur lítið innslag á videoformi fyrir verkið. Auðga líka TURF. En sem sagt, um hádegisbilið vorum við í Rvk og ferðin var góð, en við vorum að sama skapa afskaplega sibbnir. Góð og skemmtileg för á Patró. MYNDIR 1: Hlynur og Gummi. 2: Útsínið úr Ráðagerði, gististaðurinn okkar. 3: Stóribaugur, Íll og Úlfur horft til vesturs úr Ráðageðri. 4: Borðbekkur 5: Trésmiðjuaðstaðan, síðari. 6:Jim og Sylvia frá USA |
KviklandFréttir af hinu og þessu þegar það á við. Geymsla
December 2022
Flokkar |