Hótel Hafnarfjall hjá Gylfa hótelstjóra.
Föstudaginn 26.feb 2016 Vesturlandsskógar buðu mér aðvera með erendi um ungskógaumhirðu sem og ég lét verða af. Ég fékk far með bóndanum af Gautastöðum honum Halldóri Jóhannessyni, afbragðs maður sá. Fjöldi manns var á fundinum. Sigga Júlla talaði fyrst í rúma klukkustund, með spurningum. Ég fékk því 45 mínútur og nýtti þær, þurfti samt að gefa töluvert í í lokin. Erendi mitt var 5 þætt. 1) Tilgangur skógaræktar 2) Skógarsnyrtingar 3) Millibilsjöfnun 4) Reynslan af Héraði 5) Staðan hjá Vesturlandsskógum. Eftir fyrirlestra var snætt lambalæri og hlýtt á skemmtiatriði. Svo var spjallað og fékk ég 3 heimboð sem mig langar ofboðslega að nýta. Ég vona að bændum hafi líkað innlegg mitt og arki nú af stað í skóga sína með klippur í hönd. Gott kvöld, takk fyrir mig. PS. mér ljáðist að taka mynd.
0 Comments
Í dag kíktum við Kolla á morgunfyrirlestra í boði Advania. Það sem vakti fyrir mér var að þetta gæti kannski nýst í mússíksköpun fyrir OUTandPLAY video framtíðarinnar. Fyrstur talaði Ivar hjá Atmo Talired curied misic, var eitthvað sem mér þótti áhugavert, man samt ekki hvað það var. Svo talaði hann um dæmið úr 10/11. Einhvertíman kom hann að nóttu til í þá búð og einungis tveir starfsmenn voru í búðinni (engir kúnnar). Það var dúndrandi há tröllatónlist sem alla jafna hefði fælt kúnna frá. Ívar hlóg en starfsmenn lækkuðu í græjunum. Þetta er dæmi um hvernig mússík getur spilað á kúnnann. Á myndinni eru dæmi um viðskiptavini ATMO. En sem sagt, Atmo er fyrirtæki sem semur um að koma réttri stemningu á rétta staði, á heimsvísu. Alger snilld. Næst talaði bretinn Yuli. Hann talaði um all konar atmo music. Tók dæmi um gamlan tónlistarmann Brian Emo. Flokka má mússík í þrennt: -Dinamic music, hefðbundin mússík með nótum og slíkt -Generative music, liftutónlist einhverskonar, C-dúr og loop dót -Reactive music, sem er interactive mússík. Það er það nýjasta. Hans fyrirtæki bjó til app fyrir ökumenn sem bjót til viðeigandi stemningu eftir akstri. þ.e. hratt, hægt, stopp, hægri beygja, vinstri beygja, dagur, kvöld, osfrv.
Baldur hjá CCP talaði um tónlist í tölvuleikjum. Þar er sko allt að gerast. 80% notenda EVE online vilja notast við tónlistina úr tölvuleiknum. Það telst nokkuð gott í þessum heimi og segir manni það að hún sé rétt-stemnd. Hann sagði líka að Dr. Kjartan Ólafsson semdi tónlistina fyrir EVE á Calmus. Sandbox MMO er forrit sem vert er að skoða. Hjer er smá myndbrot/hljóðbrot af fyrirlestri hans. Í dag stóð Íslandsstofa fyrir opnum fundi á Hótel Hilton undir heitinu "Markaðssetning í breyttu umvherfi". Fundurinn var málefnalegur og mættu 320 manns á hann. Við Kolla mættum og sáum fyrir okkur að hann gæti nýst okkur í markaðsmálum á ferðaþjónustunni okkar "OUTandPLAY". Heilt yfir fannst okkur þessi fundur góður og margt virðist á réttri leið (ef einhver leið er réttari en önnur). Hér á eftir eru nokkrir punktar af fundinum.
Á laugardaginn var fórum við Stefán Jónsson í Deildartungu í land Jóns Björnssonar að bila um hálfan hektara af skógji. Dagurinn byrjaði kl 8:30 er lagt var af stað úr borginni. Þegar í Deildartungu var komið áttuðum við okkur á því að hjálminn vantaði hjá okkur báðum. Við náðum þó að bjarga því með að kíkja í ýmis skúmaskot á bænum. Stefán er handlaginn og með gott auga við bilun en við náðum samt ekki að klára reitinn eins og við ætluðum. Þetta er því eins og svo ofsalega oft að maður vanmetur verkin stundum, eða alltaf. Bras kom upp á heimleiðinni sem tafði okkur en við komumst þó heilir aftur í borgina og áframhald í reitnum verður vonandi næstu helgi.
Á myndunum eru bræðurnir Stefán og Ingimundur ásamt bræðrabörnum. Í gær kíkti ég á Hvanneyri og hitti þar gæðafólk hjá Vesturlandsskógum, þau SigguJúllu, Hraundísi og Guðmund. Tilgangurinn var að líta á stoðu elstu ungskóganna hjá þeim í því ljósi hvort vert sé að fara og bila þá. Við Sigga fórum og skoðuðum skóga á nokkrum bæjum. Deildartungu, Þrepi (rétt neðan), Vilmundarstaðir, Steindórsstaðir, Skógarsel, Odsstaðir og Tungufell úr fjarska. Einhverjum bæjum slepptum við vegna tímaeklu. Niðurstaðan úr þessari skoðun var að vert væri að athuga bæjina Deildartunga, Vilmundarstaðir, Skógarsel og mögulega Steindórsstaði.
Ég geri ráð fyrir að hitta Hraundísi í næstu viku og við tökum fyrri úttekt á nokkrum reitum. Þá er stefnan að hefja sögun á reitunum skömmu eftir. Á föstudaginn 26. feb mun ég svo vera með erendi um ungskógaumhirðu fyrir bændur í Vesturlandsskógum. Þetta var góður dagur. Myndirnar hér að neðan eru: - Af okkur Siggu skammt innan við hliðið á Skógarseli. - Afskaplega þétt gróðursetning á ónefndri jörð - Mögulegur smáreitur til bilunar í landi Deildartungu. Nýja árið er hafið með hækkandi sól og leit að launuðum verkefnum.
Mér var bent á eftirfarandi starf í Grænlandi og þar sem mér þykir það svo spennandi þá verð ég að blogga léttvægt um það, ekki það að ég ætli að yfirgefa Ísland, ekki í bráð í það minnsta. Starfið er í stærsta sveitafélagi jarðarinnar og er í bæ sem heitir Ilulissat. Slóðin að umsókninni er hér
Gott málþing var í Hörpunni seinnipart þiðjudagsins 24. nóv. Vel var mætt og boðið var upp á nýbakaðar kleinur og kaffi. Fyrirlesarar voru góðir og höfðu margt mjög frambærilegt til málanna að leggja.
Niðurstöður fundarinns eru HÉR! - Gísli, framvkædastjóri FFH, tók stöðuna í upphafi og tipplaði á framtíðar hugmyndum. Gott - Regína, bæjarstjóri Akraness, talaði um sementsreitinn og framtíðar hugmyndir á honum. Gott - Helgi Laxdal, forstöðumaður FFH, fór yfir umhverfismál af ýmsu tagi. Hljóðmengun, lýsing og rafvæðing. Þennan fyrirlestur tengdi ég mest við. Mjög GOTT. - Kristín Soffía, fór yfir möguleika á nýrri Akraborg. Skemmtilegar hugmyndir, GOTT - Svavar féll í skuggan á hinum, en efnið var gott. Sjálfbær sjávarútvegur. En sem sagt, ég hafði gagn og gaman af. Á föstudeginum 13. nóvember sl. fékk að þvælast með miklu rannsóknarteymi frá rannsóknarstöð skógræktar á Mógilsá. Á bakvið þessa ferð stóð Bjarki en ætlunin var að fara í almennt tékk og eftirlit í Sandlækjarmýri í Gnúpverjahreppi. Feðrin var þræl skemmtileg og fræðinandi. Videocamera fékk að fylgja með í för og gerði ég nokkur video um ferðina. Fyrsta myndin er um stöðumatið á svæðinu og tekur um 10 mínútur Næsta video er um 3 mínútur og fjallar um vöxt trjánna á svæðinu Í síðasta videoinu er farið létt yfir það sem á sér stað í hveraskóingum ofan við LBHI,Hveragerði. Í hádeginu í dag fór ég á skemmtilegan fyrirlestur hjá vinkonu minni sem hélt tölu um umhverfissálfræði. Þetta er fag sem ég og væntanlega fleiri menntaðir landslagsarkítekar þekkjum inná, en mjög gaman að hlusta á þá sem eru mjög vel að sér í faginu eins og Móheiður Helga. Hér er smá kynning á henni sem fylgdi með auglýsingunni.
GESTAGANGUR – HÁDEGISFYRIRLESTUR – UMHVERFISSÁLFRÆÐI – MÓHEIÐUR HELGA Miðvikudaginn 18. nóvember kl. 12.15 heldur Móheiður Helga erindið Umhverfissálfræði í fyrirlestraröð hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, GESTAGANGI í Þverholti 11, fyrirlestrarsal A. Móheiður útskrifaðist sem arkitekt frá Arkitektaskólanum Aarhus árið 2010. Veturinn 2014-2015 stundaði hún meistaranám í umhverfissálfræði við University of Surrey í Guildford á Englandi. Í dag vinnur Móheiður á Teiknistofu Gunnars Hanssonar. Í þessum fyrirlestri mun Móheiður fjalla um grunnkenningar úr umhverfissálfræði og samspil umhverfis, hegðunar og líðanar. Ég tók svo niður nokkra punkta sem hér koma á eftir. - The nodge theory. Félag-áhrif. t.d. móðir leiðir barn af villigötum til betri vegar og þetta. - Góð hönnun skapar vellíðan. Það, að finna út úr flóknum getur verið flókið, en svo lengi sem hluturinn er fallegur er líklegra að niðurstaða fáist í málið en ef hann ef fráhrindandi. (t.d. Apple) - Nokkrar áhugaverðar kenningar - Preferences er algengt rannsóknarform, val fram yfir annað. - The preference model, Kaplan og Kaplan - Circumplex model of affect, Russel - Sálfræðileg endurhæfing, ART (attention restoration theory), Kaplan og Kaplan - STIMMULATION, það sem ögrar í umhvefinu Intensity Complexity Mystery Novelty Noise Light Odour Colour Crowding Visual expeosure Adjacencies Prosimity to circulation - Áhugavert lesefni: - Journal of Environmental Psychology, Umhverfissálfræði - Environment and Behavior, Journal - PSYecology, Umhvrfissálfræði enska/spænska - Ecopsychology, Journal, heimasíða og blog - Journal of Architectural and Planning Research - The Architectural Review - Landscape Research, Journal - Journal of Environmental Education, Kennsla og umhverfi |
KviklandFréttir af hinu og þessu þegar það á við. Geymsla
December 2022
Flokkar |